Frysting á kynfrumum/fósturvísum

Við glasafrjóvgun geta orðið til fleiri en einn góður fósturvísir í hverri meðferð. Fósturvísar sem uppfylla gæðaviðmið en eru ekki notaðir til uppsetningar eru frystir með aðferð sem kallast glerjun (vitrification).

Glerjun felur í sér afar hraða frystingu þar sem fósturvísirinn er kældur svo hratt að ísagnir myndast ekki inni í frumunum. Þess í stað storknar umfrymið á glerlíkan hátt. Til að undirbúa frystinguna er gert lítið gat á ytra frumulag fósturvísisins og hann síðan færður í nokkrar mismunandi frystilausnir sem draga vatn úr frumunum. Að því loknu er fósturvísirinn settur á sérstakan burðarspaða með örlitlu magni af frystilausn, komið fyrir í innsigluðu strái og geymdur í fljótandi köfnunarefni. Allt ferlið tekur einungis nokkrar mínútur.

Við frystingu ófrjóvgaðra eggja er notuð sama aðferð og við frystingu fósturvísa. Munurinn felst eingöngu í samsetningu þeirra frystilausna sem notaðar eru.

Við frystingu sáðfrumna er sérstök frystilausn blönduð saman við sæðissýnið. Sýninu er síðan komið fyrir í innsigluðum stráum sem eru kæld smám saman áður en þau eru fryst í sérstöku kælibaði.

Allar frystar kynfrumur og fósturvísar eru geymd í fljótandi köfnunarefni við −196°C í sérhönnuðum geymslutönkum.

Samkvæmt íslenskum lögum má geyma frystar kynfrumur, þ.e. egg og sæði, í allt að 50 ár, en frysta fósturvísa í allt að 35 ár.

Séð ofan í geymslutank.